Atburđir

Ađalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík

Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldinn sunndaginn 15. janúar 2012, í Brautarholti 4A, 2. hæð.
 

 Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Skýrsla stjórnar.

  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykkis.

  3. Kosning formanns.

  4. Kosning gjaldkera, ritara og 3 meðstjórnenda.

  5. Kosning 2 skoðunarmanna reikninga.

  6. Ákvöðun tekin um árgjald félagsins.

  7. Önnur mál.

Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum:  
  • Jón Björnsson landvörður Hornstrandafriðlands. 
  • Sýndar verða myndir frá Aðalvík úr safni Benedikts Magnússonar. 

 Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Ţorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík

Á ţorrablóti Sléttuhreppinga er dansađ fram á rauđa nótt. Frá ţorrablóti 2011
Á ţorrablóti Sléttuhreppinga er dansađ fram á rauđa nótt. Frá ţorrablóti 2011
1 af 3
Hið árlega þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldið laugardaginn 28. janúar 2012 í sal Þróttara í Laugardal.

Verðið er kr. 5.500 á manninn.


Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til stjórnar í tölvupósti, netfang reykjavik@slettuhreppur.is


Dagskrá:
Húsið opnað kl. 19:00 með fordrykk
Borðahald hefst c.a. kl. 20-20:15
Formaður býður gesti velkomna og setur þorrablótið
Veislustjóri Finnur Vilhjálmsson, Steinhúsinu á Sæbóli 
Matur
Sungið úr söngheftum
Ræðumaður kvöldsins Rannveig Guðmundsdóttir frá Sléttu, fyrrverandi þingmaður og ráðherra 
Minni karla Ingibjörg Reynisdóttir, sungið á eftir Táp og fjör og frískir menn
Minni kvenna Þórólfur Jónsson, sungið á eftir Fósturlandsins Freyja
Dansatriði Gabríel Eric Einarsson og Lísa Björk Ólafsdóttir
Happadrætti
Sungið meira úr söngheftum
Dansað með Vönum mönnum

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til stjórnar í tölvupósti, netfang reykjavik@slettuhreppur.is

Stjórn Átthagafélagsins 2012

Vefumsjón