Loading...

Á döfinni

Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík

Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2017 

Hið árlega þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldið laugardaginn 28. janúar í veislusalnum Turninum á 7. hæð í verslunarmiðstöðinni Firði, Fjarðargötu 13-15 í Hafnarfirði.
 
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til stjórnar í tölvupósti, netfang reykjavik@slettuhreppur.is, ekki mikið seinna en mánudaginn 23. janúar.

Verðið er kr. 7.200 á manninn. Best er að borga miðann með því að leggja inn á reikning félagsins: 0116-26-003591, kt. 480182-0149 og setja Þorrablót 2017 í skýringu.
 
Dagskrá
Húsið opnað kl. 19:00
Borðahald hefst um kl. 20-20:15
Formaður býður gesti velkomna og setur þorrablótið
Veislustjóri tekur við

Matur

Sungið úr söngheftum

Ræðumaður kvöldsins, Matthildur Guðmundsdóttir, frá Látrum í Aðalvík
Minni karla. Á eftir er sungið Táp og fjör og frískir menn
Minni kvenna. Á eftir er sungið Fósturlandsins Freyja

Söngatriði
Jóhanna Guðrún Sigurðardóttir frá Látrum í Aðalvík
Sunna Karen Einarsdóttir frá Borg í Aðalvík
 

Happadrætti 
Sungið meira úr söngheftum
Plötusnúður spilar fyrir dansi fram eftir kvöldi