Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps

Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður haldinn mánudaginn 27. maí kl. 17.00 í Borgartúni 37 Reykjavík, húsnæði Nýherja. Dagskrá er skv. lögum félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
  3. Lagabreytingar
  4. Stjórnarkjör.
  5. Kjör tveggja endurskoðenda til 2ja ára í senn og tveggja til vara.
  6. Tekin ákvörðun um árgjald til félagsins.
  7. Önnur mál.
Tillaga til lagabreytinga:
Í stað orðsins „endurskoðenda“  í 5. gr. komi „skoðunarmanna reikninga“.

Að loknum venjubundnum aðalfundarstörfum mun Jón Björnsson landvörður ræða um málefni Hornstrandafriðlands og svara spurningum fundarmanna.