Átthagafélag Sléttuhrepps á Ísafirði | 10/02/2012

Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps á Ísafirði 2012

Frá þorrablóti 2011
Frá þorrablóti 2011
1 af 6

Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps á Ísafirði, verður haldið í Félagsheimilinu í Hnífsdal, laugardaginn 18. febrúar.

 

Húsið opnar kl. 19:30 

Rútuferð inn á Ísafjörð að loknu blóti, kl. 2:00. 

Miðapantanir hjá Henrý í síma 863-0827 og hjá Bergmanni í síma 456-3197.
Miðar eru seldir í Birki - hjá Lóu.

Miðaverð er 3.500 kr.

 

Nefndin

Átthagafélag Sléttuhrepps í Reykjavík | 16/01/2012

Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2012

Á þorrablótum Slétthreppinga er dansað fram á rauða nótt. Frá þorrablóti 2011.
Á þorrablótum Slétthreppinga er dansað fram á rauða nótt. Frá þorrablóti 2011.
1 af 3

Hið árlega þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldið laugardaginn 28. janúar 2012 í sal Þróttara í Laugardal. 


Meira
Átthagafélag Sléttuhrepps í Reykjavík | 15/01/2012

Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 15. janúar 2012

Fundargestir á aðalfundi Átthagafélags Sléttuhrepps 2012.
Fundargestir á aðalfundi Átthagafélags Sléttuhrepps 2012.
1 af 16

Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps var haldinn sunnudaginn 15. janúar 2012 kl. 16. Á fundinum fór formaður félagsins yfir starfsemi ársins 2011. Gjaldkeri fór yfir reikninga félagsins.  Sigríður Helga Sigurðardóttir var endurkjörin formaður, með henni voru kosin í stjórn Bjargey Gísladóttir, Ingvi Stígsson, Jónína Kristinsdóttir, Smári Sveinsson og Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Árgjald var ákveðið 2.500 kr. Sýndar voru gamlar myndir úr fórum Benedikts Magnússonar. Jón Björnsson landvörður Hornstrandafriðlands var með kynningu á Hornstrandafriðlandi.


Meira
Hornstrandanefnd | 03/01/2012

Fundur í Hornstrandanefnd 8. desember 2011

Hornstrandanefnd fundaði 8. desember 2011.


Meira
Átthagafélag Sléttuhrepps í Reykjavík | 29/12/2011

Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík

Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldinn sunnudaginn 15. janúar 2012, klukkan 16:00 í Brautarholti 4A, 2. hæð. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf.


Meira
Vefumsjón