Messa og kirkjukaffi í Bústaðakirkju 6. maí 2012
Hin árlega messa Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður í Bústaðakirkju sunnudaginn 6. maí n.k. kl. 14:00 og kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. Þar ætlum við að eiga notalega stund saman í kirkjunni og í safnaðarheimilinu eftir messu.Kaffið kostar 1.000 kr. á mann. Vinsamlegast greiðið með reiðufé eða hafið meðferðis kvittun úr heimabanka 0116-26-003591, kt. 480182-0149.
Fjölmennum og tökum með okkur gesti. Vinsamlegast látið þetta fréttast meðal félagsmanna og ættingja.
Ræðumaður verður Elsa Haraldsdóttir frá Sléttu.
- Hvar?
Bústaðarkirkja - Hvenær?
6. maí - Klukkan?
14:00 til 16:00