Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2023
Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldinn kl. 15 sunnudaginn 29. janúar í sal Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi, Hlíðarsmára 19.
Dagskrá aðalfundar er:
- Skýrsla stjórnar.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykkis.
- Kosning formanns.
- Kosning gjaldkera, ritara og 3 meðstjórnenda.
- Kosning 2 skoðunarmanna reikninga.
- Ákvöðun tekin um árgjald félagsins.
- Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Að loknum aðalfundarstörfum verða sýndar myndir frá vinnuferð síðasta sumars.
- Hvar?
Hlíðarsmári 19 Kópavogi - Hvenær?
29. janúar - Klukkan?
15:00 til 16:00