Fundur um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Hornstrandafriðland

Fundur með hagsmunaaðilum vegna stjórnunar- og verndaráætlunar friðlands á Hornströndum

Samstarfshópur um gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið á Hornströndum býður til fundar um áætlunargerðina fimmtudaginn 23. nóvember 2017, kl. 17:00-19:00, í húsnæði Umhverfisstofnunar á Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
Á fundinum verður rætt um stefnumótun svæðisins en í 81. gr. laga um náttúruvernd segir m.a.:

„Í stjórnunar- og verndaráætlun skal m.a. fjallað um landnýtingu, landvörslu,
uppbyggingu, fræðslu og miðlun upplýsinga, verndaraðgerðir og aðgengi ferðamanna,
þar á meðal aðgengi fatlaðs fólks. Ef ekki hafa verið settar sérstakar reglur um umferð
manna og dvöl á viðkomandi svæði í auglýsingu um friðlýsingu er heimilt að setja slíkar
reglur í stjórnunar- og verndaráætlun...“

Markmið fundarins er að upplýsa landeigendur og félagsmenn í átthagafélögum Sléttu- og Grunnavíkurhrepps um gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðland á Hornströndum og kalla eftir skoðunum þeirra um þau málefni sem fjallað verður um í áætluninni.

Umhverfisstofnun býður alla samráðsaðila velkomna á fundinn.

Frekari upplýsingar veita

Dagskrá:
17.00 Fundur settur
17.00-17.15 Hvað er stjórnunar- og verndaráætlun?
Linda Guðmundsdóttir, Umhverfisstofnun

17.15-17.30 Hvernig nýtist stjórnunar- og verndaráætlun friðlandi á Hornströndum?
Jón Smári Jónsson, Umhverfisstofnun

17.30-18.30 Umræður
Umræðum verður skipt upp í fjögur þemu:

  • Hvert er ágangsþol friðlandsins?
  • Framtíðarsýn
  • Hvernig viðhöldum við verndargildi svæðisins?
  • Þjónusta, umsjón og fræðsla

18.30-19.00 Samantekt borðstjóra