Björgin þau sungu - afmælismálþing í tilefni 50 ára afmælis Hornstrandafriðlands

Í tilefni þess að 50 ár eru um þessar mundir síðan stofnað var til Friðlands á Hornströndum, efnir Hornstrandanefnd til afmælismálþings á Ísafirði föstudaginn 23. maí, milli klukkan 15 og 18 í Tónlistarskóla Ísafjarðar.

Málþinginu verður streymt á Youtube: 
https://www.youtube.com/live/cGlAAGD50Sc

Á dagskránni eru nokkur stutt erindi og umræður er líta að náttúrufari, samfélaginu og skipulag og framtíðarsýn.

Aðgangur að málþinginu er endurgjaldslaus og öllum heimill. Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Dagskrá málþingsins:
15:00 Setning – Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar
15:15 Náttúran
  • Náttúra Hornstrandafriðlands – Snorri Sigurðsson, Náttúrufræðistofnun
  • Refirnir á Hornströndum – Ester Rut Unnsteinsdóttir, Náttúrufræðistofnun
  • Panell
16:00 Kaffihé

16:15 Samfélagið
  • Aðdragandi friðlýsingar - Ingvi Stígsson, formaður landeigendafélagsins, Hornvík
  • Samfélagið á Hornströndum – Dóróthea Margrét Einarsdóttir, formaður Átthagafélags Sléttuhreppinga á Ísafirði og nágrenni, Sæbóli
  • Friðland, ekki friðland – Sigrún Guðmundsdóttir, Furufriði
  • Panell
17:00 Kaffihlé

17:15 Framtíðin
  • Skipulagsmál, framtíðarsýn Ísafjarðarbæjar – Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar
  • Framtíðarsýn ferðaþjónustu – Nanný Arna Guðmundsdóttir, Borea Adventures
  • Panell
18:00 Málstofulok

Sjá einnig Facebook viðburðasíðu málþingsins.