Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps 4. maí 2015

Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður mánudaginn 4. maí 2015 í fundarsal Nýherja hf, Borgartúni 37 Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 17:00.

Dagskrá er skv. lögum félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
  3. Lagabreytingar.
  4. Stjórnarkjör.
  5. Kjör tveggja endurskoðenda til 2ja ára í senn og tveggja til vara.
  6. Tekin ákvörðun um árgjald til félagsins.
  7. Önnur mál.

Að loknum venjubundnum aðalfundarstörfum mun Jón Björnsson, formaður Hornstrandanefndar, kynna nýjan landvörð, ræða um málefni Hornstrandafriðlands og svara spurningum fundarmanna.