Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður 30. maí 2012
Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður haldinn miðvikudaginn 30. maí kl. 17.00 í Borgartúni 37, Reykjavík, húsnæði Nýherja.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar.
- Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
- Lagabreytingar
- Stjórnarkjör.
- Kjör tveggja endurskoðenda til 2ja ára í senn og tveggja til vara.
- Tekin ákvörðun um árgjald til félagsins.
- Önnur mál.
Að loknum venjubundnum aðalfundarstörfum mun Jón Björnsson landvörður ræða um málefni Hornstrandafriðlands og svara spurningum fundarmanna.