Hornstranda-PubQuiz – friðlandið 50 ára
Í tilefni 50 ára afmælis Hornstrandafriðlands og málþings sem haldið verður á Ísafirði þann 23. maí nk. verður jafnframt efnt til sameiginlegrar kvöldstundar fyrir alla þá sem njóta þess að eiga tengingu við svæðið.
Hittumst í Dokkunni um klukkan 20 og kl. 20:30 hefst svo æsispennandi Pub Quiz, sem afkomendur fyrrum íbúa svæðisins munu sjá um. Spurningahöfundar og spyrlar verða þau Harpa og Kristín Þóra Henrýsdætur (Sæból og Horn) og bræðrabörnin Lísbet Harðardóttir og Hálfdán Bjarki Hálfdánarson (Fljótavík).
- Hvar?
Dokkan, Ísafirði - Hvenær?
23. maí - Klukkan?
20:00 til 22:00