Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 16. janúar 2011, klukkan 16:00
Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldinn sunndaginn 16. janúar 2011, klukkan 16:00 í Brautarholti 4A, 2. hæð.
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf:
-
Skýrsla stjórnar.
-
Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykkis.
-
Kosning formanns.
-
Kosning gjaldkera, ritara og 3 meðstjórnenda.
-
Kosning 2 skoðunarmanna reikninga.
-
Ákvöðun tekin um árgjald félagsins.
-
Önnur mál.
-
Stjórn félagsins mun bera upp eftirfarandi tillögu að lagabreytingum:
1. mgr. 6. gr. orðist svo:
„Aðalfundur skal haldinn árlega í janúar og skal boða til hans með minnst 2ja vikna fyrirvara. Reikningsár félagsins skal vera almanaksárið.“
-
Að loknum venjulegum aðalfundarfundarstörfum:
Erling Ásgeirsson formaður Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps kynnir Landeigendafélagið.
Myndasýning frá vinnu við Staðarkirkjuna sl. sumar (Jónína) og einnig kirkjuferðinni 17. júlí sl. (Ingvi).
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar.