Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps 2026
Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður haldinn sunnudaginn 31. maí kl. 15:00 í sal Flugbjörgunarsveitarinnar Reykjavík, Flugvallarvegi 7, 102 Reykjavík.
Salurinn er á 1. hæð og eru bílastæði fyrir framan hús. Húsið er miðja vegu milli Valsheimilisins og Hótels Loftleiða
Dagskrá er skv. lögum félagsins:
- Skýrsla stjórnar.
- Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
- Lagabreytingar
- Stjórnarkjör.
- Kjör tveggja skoðunarmanna til 2ja ára í senn og tveggja til vara.
- Tekin ákvörðun um árgjald til félagsins.
- Önnur mál.
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.