Loading...

Á döfinni

Afmælishátíð Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík

Loksins loksins sjáum við fram á að geta haldið afmælishátina okkar sunudaginn 22. maí eftir að hafa ítrekað þurft að fresta henni.

Hátíðin byrjar kl 14 í Skátaheimili Kópavogs, Digranesvegi 79.

Þar er gott útivistavæði m.a. með fótboltavelli, frísbívelli og leiktækjum fyrir börn og fullorðna.

VIð gerum ráð fyrir að allir komi með eitthvað gott með sér á hlaðborð, en drykkir verða á staðnum.

Verð kr. 2.000 fyrir fullorðna, en frítt fyrir börn.

Takið daginn frá og við hlökkum til að sjá sem flesta.

Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps 2022

Aðalfundur Landeigendafélags Sléttu- og Grunnavíkurhrepps verður haldinn þriðjudaginn 31. maí kl. 17:30 í sal Flugbjörgunarsveitarinnar Reykjavík, Flugvallarvegi 7, 102 Reykjavík. Salurinn er á 1. hæð og eru bílastæði fyrir framan hús.og vestan megin við húsið. Húsið er miðja vegu milli Valsheimilisins og Hótels Loftleiða

Dagskrá er skv. lögum félagsins:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar.
  3. Lagabreytingar
  4. Stjórnarkjör.
  5. Kjör tveggja skoðunarmanna til 2ja ára í senn og tveggja til vara.
  6. Tekin ákvörðun um árgjald til félagsins.
  7. Önnur mál.