Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2023

Aðalfundur Átthagafélags Sléttuhrepps verður haldinn kl. 15 sunnudaginn 29. janúar í sal Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi, Hlíðarsmára 19.


Dagskrá aðalfundar er:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykkis.
  3. Kosning formanns.
  4. Kosning gjaldkera, ritara og 3 meðstjórnenda.
  5. Kosning 2 skoðunarmanna reikninga.
  6. Ákvöðun tekin um árgjald félagsins.
  7. Önnur mál.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar. 

Að loknum aðalfundarstörfum verða sýndar myndir frá vinnuferð síðasta sumars.