Átthagafélag Sléttuhrepps í Reykjavík: Aðalfundur 2020, messukaffi og afmælishátíð

Aðalfundur félagsins verður haldinn sunnudaginn 19. janúar 2020, klukkan 15:00 í salnum Dal í Áskirkju,
Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf:

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykkis.
  3. Kosning formanns.
  4. Kosning gjaldkera, ritara og 3 meðstjórnenda.
  5. Kosning 2 skoðunarmanna reikninga.
  6. Ákvörðun tekin um árgjald félagsins.
  7. Önnur mál.


Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn. Boðið verður upp á kaffiveitingar.


Þorrablót

Ekki verður haldið þorrablót 2020. Átthagafélagið verður 70 ára á árinu og í stað þorrablóts verður haldin afmælishátíð í september.

Messukaffi

Messukaffið verður þann 17. maí í Áskirkju. Nánar auglýst síðar.

Afmælishátíð

Átthagafélagið verður 70 ára á árinu verður haldin afmælishátíð í september. Óskað er eftir sjálfboðaliðum í afmælisnefnd.