Þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík 2016

Hið árlega þorrablót Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík verður haldið laugardaginn 23. janúar í Restaurant Reykjavík, Vesturgötu 2.


Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til stjórnar í tölvupósti, netfang reykjavik@slettuhreppur.is

Verðið er kr. 7.000 kr. á manninn. Best er að borga miðann með því að leggja inn á reikning félagsins: 0116-26-003591, kt. 480182-0149 og setja Þorrablót 2016 í skýringu.


Dagskrá:
 
Húsið opnað kl. 19:00
Borðahald hefst c.a. kl. 20-20:15
 
Formaður býður gesti velkomna og setur þorrablótið
Veislustjóri tekur við
 
Matur
 
Sungið úr söngheftum
 
Ræðumaður kvöldsins, Ingveldur G. Ólafsdóttir, ættuð frá Sæbóli í Aðalvík
 
Minni karla. Á eftir er sungið Táp og fjör og frískir menn
Minni kvenna. Á eftir er sungið Fósturlandsins Freyja
 
Skemmtiatriði
 
Happadrætti 
 
Sungið meira úr söngheftum
 
Plötusnúður spilar fyrir dansi fram eftir kvöldi