Spurningakeppni átthagafélaganna á höfuðborgarsvæðinu 2013

Öflugustu átthagafélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið sig saman og efnt til spurningakeppni. Fyrir hönd Átthagafélags Sléttuhrepps keppa Harpa Henrýsdóttir, Ólafur Helgi Kjartansson og Þórólfur Jónsson.

Alls taka 16 átthagafélög þátt í keppninni:

  • Árnesingafélagið
  • Átthagafélag Héraðsmanna
  • Átthagafélag Sléttuhrepps
  • Átthagafélag Strandamanna
  • Barðstrendingafélagið
  • Breiðfirðingafélagið
  • Dýrfirðingafélagið
  • Félag Djúpmanna
  • Húnvetningafélagið
  • Norðfirðingafélagið
  • Siglfirðingafélagið
  • Skaftfellingafélagið
  • Stokkseyringafélagið
  • Súgfirðingafélagið
  • Vestfirðingafélagið
  • Önfirðingafélagið

Sú hugmynd vaknaði að endurvekja spurningakeppni átthagafélaganna sem haldin var í nokkur ár kringum aldamótin síðustu. Þar sem spurningakeppnir eru „í tísku“ núna, samanber Útsvar og öll PubQuiz-in, gæti það verið tilvalinn vettvangur til að vekja athygli á átthagafélögunum og virkja meðlimi þeirra. Ekki síst að fá unga fólkið til að taka þátt. Hugmyndin er því að hafa keppnina létta og skemmtilega, ekki of fræðilega. Keppnin verður haldin í Breiðfirðingabúð, hefst 28. febrúar og lýkur á síðasta vetrardag. Höfundur spurninga er Gauti Eiríksson, grunnskólakennari.