Loading...

Auglýsing um friðland á Hornströndum 27. febrúar 1975

Auglýsing um friðland á Hornströndum 27. febrúar 1975

Hornstrandir

Stjórnartíðindi B, nr. 366/1975.

Auglýsing
um friðland á Hornströndum. 

Samkvæmt heimild í 24. gr. laga nr. 47/1971, um náttúruvernd hefur Náttúruverndarráð fyrir sitt leyti ákveðið að friðlýsa svæðið norðvestan Skorarheiðar í Norður- Ísafjarðarsýslu, og er það friðland.

Mörk svæðisins eru þessi:
Úr botni Hrafnsfjarðar um Skorarheiði í botn Furufjarðar, lína um Skorarlæk frá ósi í Skorarvatn og meðfram suðurströnd vatnsins, en síðan í beina línu úr austasta hluta vatnsins í þá kvísl, við upptök sem næst gengur vatninu og fellur í Furufjarðarós, ásamt 200 m breiðri spildu þar suður af.

Reglur þessar gildi um svæðið:

  1. Mannvirkjagerð öll, jarðrask og önnur breyting á landi, svo og undan landi allt að 60 föðmum (115 m) frá stórstraumsfjörumáli, er háð leyfi Náttúruverndarráðs.
  2. Umferð vélknúinna farartæka á landi utan vega og merktra slóða er bönnuð, nema með leyfi Náttúruverndarráðs.
  3. Leyfi landeigenda, sem í hlut á, þarf til allra veiða, eggjatöku og annarra hlunnindanytja á svæðinu. Leyfi Náttúruverndarráðs þarf ef eigi er um að ræða hefðbundnar nytjar, svo sem viðhald túna og garða.  
  4. Heimilt er að ganga um svæðið og fara um það með hesta. Þó er skylt að ganga þannig um, að ekki sé spillt gróðri, dýralífi, minjum, mannvirkjum, né öðrum verðmætum. Náttúruverndarráð setur nánari reglur viðvíkjandi umferð um hið friðlýsta svæði.
  5. Náttúruverndarráð og aðrar stofnanir, sem í hlut eiga, skulu stuðla að vernd menningarminja, gera greiðfærar gamlar götur og viðhalda vörðum.
  6. Bannað er að beita búpeningi á friðlandið. Þó tekur þetta ekki til hesta þeirra sem ferðast um landið, meðan á ferð þeirra stendur.
  7. Náttúrverndarráð setur nánari reglur um afnot landeigenda af eignum sínum á hinu friðlýsta svæði.
  8. Náttúruverndarráð hefur samráð við Landeigendafélag Sléttu- og Grunnavíkurhrepps um nánari framkvæmd á reglum þessum.

Til undanþágu frá reglum þessum þarf leyfi Náttúruverndarráðs eða þess sem fer með umboð ráðsins.

Um viðurlög vegna brota á reglum þessum fer eftir ákvæðum náttúruverndarlaga

Ráðuneytið er samþykkt friðlýsingunni, sem tekur gildi við birtingu þessarar auglýsingar í Stjórnartíðindum. 

Menntamálaráðuneytið, 27. febrúar 1975.

Vilhjálmur Hjálmarsson

_________________
Knútur Hallsson