Loading...

Refaskoðun

Viðmiðunarreglur um refaskoðun

Náttúrúfræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun Íslands og Melarakkasetur Íslands hafa gefið út viðmiðunarreglur um refaskoðun. 

Viðmiðunarreglur um refaskoðun

Áður en haldið er á refaslóðir er mælt með því að kynna sér lífshætti villtra refa en það má t.d. gera með því að heimsækja Melrakkasetur Íslands. Mikilvægt er að þekkja þarfir dýranna og átta sig á því að þau þurfa næði til að geta sinnt eigin þörfum og afkvæma sinna. Vegna þess hve óðulin á Hornströndum eru lítil og stutt í næstu nágranna er lítið svigrúm fyrir dýrin til að fara annað til að leita öryggis, finna fæðu og vernda afkvæmi sín.

Fyrir utan að kynna sér og virða almennar reglur um umgengni við náttúru og dýralíf er mikilvægt að hafa í huga eftirfarandi:

  • Sýnið tillitssemi, verið þolinmóð. Helst ekki fara nær ref eða greni en 40 metra.
  • Reynið að takmarka þann tíma sem þið eruð í nágrenni við dýrin eða grenið við 20 mínútur.
  • Ef þið sjáið ref sem ykkur langar að fylgjast með, er besta leiðin að halda kyrru fyrir og fylgjast með úr fjarlægð. Ef þið eruð hljóð og forðist óþarfa hreyfingar er ekki ólíklegt að dýrið komi sjálft til ykkar, svo fremi sem það finni sig öruggt.
  • Ef þið þurfið að fara framhjá greni, gangið rösklega en hljóðlega og ekki staldra við fyrr en í a.m.k. 40m fjarlægð frá greninu. Ef þið eruð í hópi er best að halda saman og lágmarka þann tíma sem það tekur að fara framhjá greninu.
  • Forðist að fara á milli foreldra og afkvæma og gefið pláss til að dýrin geti komist leiðar sinnar.
  • Ef dýrin sýna merki um óöryggi eða hræðslu, færið ykkur fjær eða yfirgefið staðinn.
  • Þó dýrin virðist róleg og spök er ekki víst að þau séu sátt. Nærvera fólks getur komið í veg fyrir að foreldrar sinni yrðlingum og þeir fá ekki næga næringu.
  • Nauðsynlegt er að dýrin fái frið til að afla fæðu og sinna afkvæmum, t.d. milli kl. 19:00 og 9:00.
  • Hundar koma í veg fyrir að ferðamenn geti skoðað refi í náttúrulegum heimkynnum. Ólíklegt er að refir sjáist þegar hundur er á ferð og í nokkurn tíma eftir að hundurinn er farinn. Ef þið eruð með hund, hafið hann í taumi og komið í veg fyrir að hann geti farið að refagreni.
  • Refagreni eru friðuð með lögum: „Skylt er að ganga vel um greni og ber að skilja við það eins og komið var að því. Óheimilt er að eyðileggja greni. Ekki má láta hunda hlaupa um á greni á grenjatíma né hafa þar óþarfa umgang.“ (lög nr. 64/1994, reglugerð nr. 437/1995).

Með vinsemd og virðingu,

Náttúrufræðistofnun Íslands, Umhverfisstofnun, Melrakkasetur Íslands.