Afmælisfagnaður Átthagafélags Sléttuhrepps í Reykjavík
[mynd 4 h]Átthagafélag Sléttuhrepps í Reykjavík hélt afmælisfagnað 15. október 2010 í tilefni 60 ára afmælis félagsins. Fleiri myndir ef smellt er á fyrirsögn eða „meira“.
Nánar ›[mynd 4 h]Átthagafélag Sléttuhrepps í Reykjavík hélt afmælisfagnað 15. október 2010 í tilefni 60 ára afmælis félagsins. Fleiri myndir ef smellt er á fyrirsögn eða „meira“.
Nánar ›Átthagafélag Sléttuhrepps á Ísafirði og í Reykjavík stóðu fyrir messuferð í Staðarkirkju í Aðalvík 17. júlí 2010. Var margmenni í messunni, 129 skrifuðu sig í gestabókina í prestsetrinu. Séra Agnes M. Sigurðardóttir prestur í Bolungarvík messaði og henni til aðstoðar var séra Hulda Hrönn Helgadóttir prestur í Hrísey. Að lokinni messu fóru kirkjugestir í prestsetrið þar sem boðið var upp á kaffi og kökur. Um kvöldið var brenna í fjörunni við skólann og ball í skólanum á eftir.
Félaginu hafði borist að gjöf 50 númeraðar könnur með mynd af kirkjunni. Var það Merkt ehf. sem gaf svona rausnarlega. Könnurnar voru seldar á ballinu og rann ágóðinn í kirkjusjóð Átthagafélagana. Könnur númer 1 og 50 voru boðnar upp sérstaklega.
[mynd 5 h]Síðustu vinnuferð í Staðarkirkju í Aðalvík er lokið. Í þessari vinnuferð var gengið frá kirkjuturninum, kirkjan máluð að innan, tröppur settar upp og gengið frá gluggum. Þó nokkur fjöldi tók þátt í vinnuferðinni. Smá frágangur er eftir sem fólk víkinni mun sinna, en stefnt er að messu í kirkjunni 17. júlí næstkomandi.
Nánar ›Hin árlega messa Átthagafélagsin Sléttuhrepps í Reykjavík var haldin í Áskirkju sunnudaginn 2. maí n.k. kl 14:00. Ræðumaður var Borgþór Kjærnested og fylgir hér ræða hans.
Nánar ›